Sunday, February 28, 2010

Snjóvofan á stofuglugganum !

Jæja, frábært veður í dag! Sólskin og heiður himin.
Þannig veður hefur ekki sést hér undan farna viku eða kanski lengur.

Þessi snjóvofa hraktist undan veðrinu í fyrrakvöld og lá á glugganum hjá mér.
Ég tók mynd af henni í stað þess að bjóða henni inn :)

Hér er kominn talsverður snjór og mikil þrengsli og þæfngur á götum bæjarins.
Bílar víða fastir í sköflum og ég hef ekki getað hreyft Citroen bifreið mína næstum alla vikuna.
Ætla að reyna að grafa hana úr skafli í dag. ( Svo hún sé heima við þegar ég fer til Englands )

Jeppinn hefur oftast komist upp á Háveginn en Skúli hefur þó þurft að skilja hann eftir í götunni fyrir neðan ( Suðurgata )
Hávegurinn hefur nefnilega líka orðið ófær jeppum !

En í dag er sól og blíða og hiti svei mér þá.


Nú styttist í Birmingham ferð, er farin að þvo og pakka. Við förum á þriðjudag til Keflavíkur og gistum þar en fljúgum svo út á miðvikudagsmorguninn.

Það hefur verið leiðinlegt verður í Birmingham sjnókoma, slydda og rigning.
við fáum sennilega gott veður á miðvikudag þegar við lendum en svo á að rigna mikið á fimmtudag. Þá verðum við reyndar á sýningunni og inni við. Síðan er bara að hlaupa í skjól inn á söfn og í kirkjur og skoða sig um og taka myndir.
Við verðum á sýningunni fyrir hádegi á fimmtudag og föstudag.
Förum svo til Lundúna á laugardaginn og skoðum okkur um.
Þar gistum við og fljúgum síðan heim á sunnudaginn upp úr hádegi.

Þetta er greinilega allt of stutt :)

Thursday, February 18, 2010

Enn af þorrablótum.

Maddý og Dóra.
Nemendur fá sér bita.
Magga, Jónína, Skarphéðinn, Guðný og Tóti.


Í dag var þorrablót í skólanum, nemendur hafa í vikunni verið að baka rúgbrauð, flatkökur og gera sviðasultu. Í dag var svo búin til kartöflumús og rófustappa. Allir komu í lopapeysu og ullarsokkum í dag í skólann og svo var haldið þorrablót milli kl. 10 og 11. Nemendur voru mis hrifnir af sviðasultunni en allir gátu borðað rúgbrauð og flatkökur. Ýmsir söngvar voru sungnir og þar á meðal Vatnssdælingastemma og Nú er frost á fróni. Allir skemmtu sér vel bæði nemendur og starfsfólk. Hér að ofan eru nokkrar myndir sem ég tók af nem og kenn.

Saturday, February 6, 2010

Þorrablót.

Við fórum á mjög skemmtilegt þorrablót fjölskyldan, í gærkvöldi.
Þar var auðvitað hinn hefðbundni þorramatur á borðum og við
Helga smökkuðum hákarl en létum hrútspungana vera.
Þetta var fámennur og skemtilegur hópur sem var mjög söngelskur
voru ekki aðeins sungin hefðbundin sönglög heldur kveðið
og sunginn fimmundarsöngur.
Fimmundarsöngur er gamalt Íslenskt fyrirbrigði
þar sem laglína er rödduð með fimmund.
Þetta var mjög gaman og vantaði bara að
við dönsuðum þjóðdansa líka.
Mér finnst þessi hrynjandi svo skemmtilegur.