Thursday, January 28, 2010

Söngur til sólarinnar og sólarkaffi.



Í dag var Sólardagurinn, nú hefði sólin náð að skína á bæinn okkar
ef sést hefði til sólar :)
Siglfirðingar höfðu sólarkaffi að venju og var boðið upp á
bæði upprúllaðar og pönnsur með rjóma
í morgunkaffinu í skólanum.

Yngri-deildir skólans söfnuðust saman kl. 11.10 á kirkjutröppunum
ásamt leikskólabörnum (sem voru með sólir á priki í höndunum )
og sungu sólar og Siglfirsk sönglög.
Þetta vildi ég hafa séð og myndað fyrir ykkur.
Þar sem ekki er hefð fyrir því að eldri deildirnar fari og hlusti
á sönginn varð ekki að því, þar sem ég var að kenna.

Fólk sem er á ferð um torgið, verslunar og bankastrarfsmenn
og viskiptavinir þeirra og fleiri nutu þessa dýrðarsöngs til sólarinnar.
Helga sá þetta og heyrði og sagði þetta hefði verið voða sætt! :)


Tuesday, January 26, 2010

Vitið þið hvaða góðlegi karl þetta er ?



Þessi karl stendur á neðri-gangi í efra-húsi Grunnskóla Siglufjarðar.
Nemendur bjuggu hann til á þemadögum fyrir nokkrum árum,
ekki veit ég hvað þemað var kallað en gæti trúað
að það hafi haft eitthvað með vináttu
og virðingu að gera.
Ef þið eruð búin að taka eftir skiltinu sem karlinn heldur á
í vinstri hönd, eruð þið væntanlega orðin heit.

Þetta er nefnilega hann Olweus,
ef þið vissuð ekki hvernig hann lítur út
þá er hann hér blessaður og gætir þess að allir
séu vinir í skólanum.
Vona að honum gangi vel við skyldustörfin :)

Friday, January 1, 2010


Flóðvangur í Vatnsdal.
Altarið í Undrfellkirkju.


Helga og afi hennar.

Á Kornsá.

" Systurnar " við hringborðið.

Jólin.

Þá erum við komin heim á Sigló eftir dvöl á Kornsá,
og góðar heimsóknir til ættingja og vina í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og Hveragerði.
Takk fyrir :) Gaman að hitta ykkur öll.

Veður var gott allan tímann og tók ég margar myndir sem sumar munu rata á síður þessa bloggs en aðrar á flickr. Við höfðum ýmislegt fyrir stafni á Kornsá, Skúli vann í húsinu og ég prjónaði og eldaði mat, jú og bakaði Sörur og Múrsteina, nei :) múrsteinar eru ekki grjótharðar, né misheppnaðar og brenndarkökur eins og nafnið gefur til kynna heldur áægtis smákökur með margenstoppi á og eru eftirlæti húsbóndans !
Guðmundur tengdafaðir minn var með okkur um jólin og fóru þau Helga í gönguferðir upp á Háls og að Undirfelli ( þar sem kirkjan er )

Sverrir bróðir Skúla og Helga systir Skúla og fjölsk. komu í kaffi á annan í jólum.

Fyrr um daginn afrekaði ég það að fara í kirkju en ég hef lengi hugsað um að gaman væri að fara annað hvort í Þingeyrakirkju á jólum eða Undirfellskirkju ( þar sem við giftum okkur)

Á Jóladag mætti ég kl. 11 fyrir utan Undirfellskirkju en presturinn mætti ekki ! og enginn annar, bara ég.

Ekkert skrýtið, því ég var degi of fljót !!

Þarna stóð ég prúðbúin fyrir utan guðhúsið og vonaði að enginn sæi til mín :)
Jú, Kornsárfólkið sá bílinn minn :)

Næsta dag gerði ég aðra tilraun og nú mætti presturinn ásamt kórnum
og þeim sem fylgdu kórnum ( 2 eignimenn söngvara í kórnum ) og börn með öðrum þeirra.
Jón sem skrýðir prestinn og hringir kirkjuklukkunum
Þórunn á Kornsá var þarna líka en hún sér um að ylur sé á kirkjunni.

Ég var eiginlega sú eina sem kom til messu á þess að hafa annað hlutverk en að mæta til guðsþjónustu.