Friday, January 1, 2010

Jólin.

Þá erum við komin heim á Sigló eftir dvöl á Kornsá,
og góðar heimsóknir til ættingja og vina í Reykjavík, Hafnarfirði, Selfossi og Hveragerði.
Takk fyrir :) Gaman að hitta ykkur öll.

Veður var gott allan tímann og tók ég margar myndir sem sumar munu rata á síður þessa bloggs en aðrar á flickr. Við höfðum ýmislegt fyrir stafni á Kornsá, Skúli vann í húsinu og ég prjónaði og eldaði mat, jú og bakaði Sörur og Múrsteina, nei :) múrsteinar eru ekki grjótharðar, né misheppnaðar og brenndarkökur eins og nafnið gefur til kynna heldur áægtis smákökur með margenstoppi á og eru eftirlæti húsbóndans !
Guðmundur tengdafaðir minn var með okkur um jólin og fóru þau Helga í gönguferðir upp á Háls og að Undirfelli ( þar sem kirkjan er )

Sverrir bróðir Skúla og Helga systir Skúla og fjölsk. komu í kaffi á annan í jólum.

Fyrr um daginn afrekaði ég það að fara í kirkju en ég hef lengi hugsað um að gaman væri að fara annað hvort í Þingeyrakirkju á jólum eða Undirfellskirkju ( þar sem við giftum okkur)

Á Jóladag mætti ég kl. 11 fyrir utan Undirfellskirkju en presturinn mætti ekki ! og enginn annar, bara ég.

Ekkert skrýtið, því ég var degi of fljót !!

Þarna stóð ég prúðbúin fyrir utan guðhúsið og vonaði að enginn sæi til mín :)
Jú, Kornsárfólkið sá bílinn minn :)

Næsta dag gerði ég aðra tilraun og nú mætti presturinn ásamt kórnum
og þeim sem fylgdu kórnum ( 2 eignimenn söngvara í kórnum ) og börn með öðrum þeirra.
Jón sem skrýðir prestinn og hringir kirkjuklukkunum
Þórunn á Kornsá var þarna líka en hún sér um að ylur sé á kirkjunni.

Ég var eiginlega sú eina sem kom til messu á þess að hafa annað hlutverk en að mæta til guðsþjónustu.

No comments:

Post a Comment