Vorið hefur loksins heimsótt okkur hér á Siglufirði :)
Undanfarna daga hefur veráttan farið batnandi og snjór bráðnað í hlíðum fjalla
enn er samt mikið eftir þar.
Í dag var yndislegt veður og hægt að ganga úti án úlpunnar.
Maríustakkurinn sem er algengasta villta plantan í bænum,
er farin að stinga sér upp úr visnum laufum og víða glittir í hana
þar sem snjórinn bráðnar ofan af.
Annar vorboði heimsótti mig í eldhúsið meðan ég var að sjóða fisk
í kvöldmatinn áðan en það var hunangsfluga,
falleg og bústin drotting sem hafiði villst inn um gluggann.
Hún barðist við að komast í gegnum rúðuna en mér tókst að veiða hana í glas
og koma henni út í frelsið.
Núna er hún alsæl að leita að góðum stað til að gera sér myndarlegt bú fyrir sumarið :)
Já er vorið ekki yndislegt !
Tuesday, April 27, 2010
Saturday, April 10, 2010
Týri kominn heim.


Þá er hefur meðlimum fjölskyldunnar fjölgað um einn.
Týri er mjög sætur og góður ( þegar hann sefur ! )
Annars er hann yfirleitt rólegur og góður þegar ég er að heiman :)
Þegar ég kem í hús, verður hann óskaplega fjörugur og vill leika endalaust !
Sennilega þykir honum ég svona skemmtileg ! eða hvað ?
Hann heldur að ég sé leiktæki og fötin mín ( sem ég er í ) tuskur til að togast á um.
Hann er samt voða mikið krútt
Hann er auðvitað svo ungur enn og uppeldið bara rétt að byrja, eftir einhverja mánuði eða ár eigum við skemmtilegan, hlýðinn og snyrtilegan hund !!
Það er markmiðið.
Helga spyr mig reglulega hvort ég sé nokkuð að gefast upp en ég sannfæri hana reglulega um að ég sé ekkert á þeim buxunum.
Subscribe to:
Comments (Atom)
