Saturday, April 10, 2010

Týri kominn heim.



Þá er hefur meðlimum fjölskyldunnar fjölgað um einn.
Týri er mjög sætur og góður ( þegar hann sefur ! )
Annars er hann yfirleitt rólegur og góður þegar ég er að heiman :)
Þegar ég kem í hús, verður hann óskaplega fjörugur og vill leika endalaust !

Sennilega þykir honum ég svona skemmtileg ! eða hvað ?

Hann heldur að ég sé leiktæki og fötin mín ( sem ég er í ) tuskur til að togast á um.
Hann er samt voða mikið krútt

Hann er auðvitað svo ungur enn og uppeldið bara rétt að byrja, eftir einhverja mánuði eða ár eigum við skemmtilegan, hlýðinn og snyrtilegan hund !!

Það er markmiðið.

Helga spyr mig reglulega hvort ég sé nokkuð að gefast upp en ég sannfæri hana reglulega um að ég sé ekkert á þeim buxunum.

2 comments:

  1. Hvað er stofunni í Kornsá orðin falleg!
    Fínt veggfóður og bjartir litir!
    Kveðjur Els.

    ReplyDelete
  2. Takk Els :) þetta er reyndar suðurherbergið sem snýr að stóra Lerkitrénu. Við fluttum stofuna þangað, því núna er verið að gera upp stofuna.

    ReplyDelete