Einn af síðustu dögunum í skólanum verður umhverfisdagur.
Eitt af því sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur verður að sauma töskur og fleira út ýmiskonar pokum sem við höfum safnað síðustu mánuði.
Við höfum safnað pokum undan fugla, hunda og kattamat, tyggjópokum,
kartöfluflögupokum, kaffip0kum og fl.
Ég er búin að sauma 3 töskur, pennaveski, snyrtiveski og keypti innkaupatösku í Birmingham
sem gerð var úr poka undan kattamat, sem verða sýnishorn.
Á myndunum má sjá 3 af þessum sýnishornum.
Blogga kanski aftur eftir umhverfisdaginn :) og sýni afraksturinn !
Saturday, May 15, 2010
Sunday, May 9, 2010
Vor í Vatnsdal :)
Nýkomin úr Vatnsdalnum
Þar var yndislegt vorveður og reyniviðurinn farinn að laufgast og sást meira segja í blómknúppana.
Grasið var grænt, fjöllin nánast sjnólaus og fuglaring sungu um sumarið.
Týri skemmti sér vel í sveitinni, hitti mömmu sína og léku þau sér mikið saman.
Ég veit nú ekki hvort þau þekktu hvort annað.
Við heyrðum drunurnar frá Eyjafjallajökli mjög greinilega og það voru greinilegar sprengingar í þeim. Ég hafði lesið að þær heyrðust allveg norður í Húnavatnssýslur svo það kom ekkert á óvart en það var samt skrýtið að verða vitni að þeim, eiginlega hálf óhugnanlegt!
Týra leið mjög illa af bílveiki báðar leiðir fram og til baka, hann var þó heldur skárri á leiðinni heim á Siglufjörð.
Hann vonandi venst þessu fljótt, því framundan er langt ferðalag austur á Selfoss, í júní :)

Subscribe to:
Comments (Atom)