Einn af síðustu dögunum í skólanum verður umhverfisdagur.
Eitt af því sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur verður að sauma töskur og fleira út ýmiskonar pokum sem við höfum safnað síðustu mánuði.
Við höfum safnað pokum undan fugla, hunda og kattamat, tyggjópokum,
kartöfluflögupokum, kaffip0kum og fl.
Ég er búin að sauma 3 töskur, pennaveski, snyrtiveski og keypti innkaupatösku í Birmingham
sem gerð var úr poka undan kattamat, sem verða sýnishorn.
Á myndunum má sjá 3 af þessum sýnishornum.
Blogga kanski aftur eftir umhverfisdaginn :) og sýni afraksturinn !
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment