Jæja þá er dvöl okkar hér á Siglufirði senn á enda.
Við höfum heillast mjög af umhverfinu, bænum og vinalegu fólkinu á Siglufirði.
Hér hef ég eignast marga vini þvi hér er manni tekið opnum örmum :)
Ég vona að ég eigi eftir að koma oft í heimsókn og teiga góða fjalla og sjávarloftið.
Horfa á fallegu fjöllin speglast í firðinum og bátana í höfninni.
Ég tók mikið af myndum á þessu ári og fyllist hreinlega heimþrá þegar ég skoða þær.
Thursday, October 14, 2010
Töskur úr pokum undan katta og hundamat :)
15 krakkar völdu að koma í endurvinnslu á pokum á Umhverfisdaginn og voru þau mjög dugleg og áhugasöm.
Hluti af því sem gert var sést á þessari mynd sem tekin var á sýning í skólanum. Sumir krakkarnir voru búnir að taka sitt með sér heim.

Saturday, May 15, 2010
Endurvinnsla/ umhverfisdagur.
Einn af síðustu dögunum í skólanum verður umhverfisdagur.
Eitt af því sem við ætlum að taka okkur fyrir hendur verður að sauma töskur og fleira út ýmiskonar pokum sem við höfum safnað síðustu mánuði.
Við höfum safnað pokum undan fugla, hunda og kattamat, tyggjópokum,
kartöfluflögupokum, kaffip0kum og fl.
Ég er búin að sauma 3 töskur, pennaveski, snyrtiveski og keypti innkaupatösku í Birmingham
sem gerð var úr poka undan kattamat, sem verða sýnishorn.
Á myndunum má sjá 3 af þessum sýnishornum.
Blogga kanski aftur eftir umhverfisdaginn :) og sýni afraksturinn !

Sunday, May 9, 2010
Vor í Vatnsdal :)
Nýkomin úr Vatnsdalnum
Þar var yndislegt vorveður og reyniviðurinn farinn að laufgast og sást meira segja í blómknúppana.
Grasið var grænt, fjöllin nánast sjnólaus og fuglaring sungu um sumarið.
Týri skemmti sér vel í sveitinni, hitti mömmu sína og léku þau sér mikið saman.
Ég veit nú ekki hvort þau þekktu hvort annað.
Við heyrðum drunurnar frá Eyjafjallajökli mjög greinilega og það voru greinilegar sprengingar í þeim. Ég hafði lesið að þær heyrðust allveg norður í Húnavatnssýslur svo það kom ekkert á óvart en það var samt skrýtið að verða vitni að þeim, eiginlega hálf óhugnanlegt!
Týra leið mjög illa af bílveiki báðar leiðir fram og til baka, hann var þó heldur skárri á leiðinni heim á Siglufjörð.
Hann vonandi venst þessu fljótt, því framundan er langt ferðalag austur á Selfoss, í júní :)

Tuesday, April 27, 2010
Vorið á Siglufiðri.
Vorið hefur loksins heimsótt okkur hér á Siglufirði :)
Undanfarna daga hefur veráttan farið batnandi og snjór bráðnað í hlíðum fjalla
enn er samt mikið eftir þar.
Í dag var yndislegt veður og hægt að ganga úti án úlpunnar.
Maríustakkurinn sem er algengasta villta plantan í bænum,
er farin að stinga sér upp úr visnum laufum og víða glittir í hana
þar sem snjórinn bráðnar ofan af.
Annar vorboði heimsótti mig í eldhúsið meðan ég var að sjóða fisk
í kvöldmatinn áðan en það var hunangsfluga,
falleg og bústin drotting sem hafiði villst inn um gluggann.
Hún barðist við að komast í gegnum rúðuna en mér tókst að veiða hana í glas
og koma henni út í frelsið.
Núna er hún alsæl að leita að góðum stað til að gera sér myndarlegt bú fyrir sumarið :)
Já er vorið ekki yndislegt !

Saturday, April 10, 2010
Týri kominn heim.

Þá er hefur meðlimum fjölskyldunnar fjölgað um einn.
Týri er mjög sætur og góður ( þegar hann sefur ! )
Annars er hann yfirleitt rólegur og góður þegar ég er að heiman :)
Þegar ég kem í hús, verður hann óskaplega fjörugur og vill leika endalaust !
Sennilega þykir honum ég svona skemmtileg ! eða hvað ?
Hann heldur að ég sé leiktæki og fötin mín ( sem ég er í ) tuskur til að togast á um.
Hann er samt voða mikið krútt
Hann er auðvitað svo ungur enn og uppeldið bara rétt að byrja, eftir einhverja mánuði eða ár eigum við skemmtilegan, hlýðinn og snyrtilegan hund !!
Það er markmiðið.
Helga spyr mig reglulega hvort ég sé nokkuð að gefast upp en ég sannfæri hana reglulega um að ég sé ekkert á þeim buxunum.
Wednesday, March 17, 2010
Nýji fjölskyldu meðlimurinn.
Litli hvutti.
Originally uploaded by Bdis
Subscribe to:
Comments (Atom)