Monday, November 2, 2009

Kisur á Siglufirði.


Já, eins og þið vitið þá er ég agalega mikið hrifin af kisum.
Í sumar tók ég mynd af nágranna kisum sem búa í húsinu fyrir neðan mig :)
Ég hef lítið séð þær síðustu mánuði þar sem þær virðast vera innikisur á þessum árstíma.
Þær fara lítið út úr þessu búri nema ein og ein í einu.
Eru þær ekki sætar? Þær eru af einhverri stórri kattartegund sem ég man ekki hvað
heitir nema sú sem er ein vinstra megin á myndinni, hún er venjuleg íslensk kisa.
Hlakka til að fylgjast með þeim í vor :)

4 comments:

  1. Já þær eru krúttlegar. En eru þær svona hættulegar, hvað eru þær að gera í búri?

    ReplyDelete
  2. Þetta eru einhverja fínar kisur :) Held að þær séu ekkert grimmar !! en kanski vill eigandinn ekki að þær séu úti um allar trissur, þær eru jú svo margar. Ég vorkenni þeim að vera ekki frjálsari.

    ReplyDelete
  3. já þær hafa það fínt svona í sér húsi í friði fyrir krökkum og svona katta gælum eins og þér.
    Ég sé þig í anda mjálmandi á gluggunum hjá þeim.
    (Ætli ég hafi alið þetta upp í þér?)
    Það sagði Lóa frænka. Kveðja mamma.

    ReplyDelete
  4. Já,það komast engir krakkar að þeim, til að hnoðast með þær :) Hvað mig varðar, þá sagði eigandinn að ég mætti koma og skoða þær þegar ég vildi. ( ég hitti hana fljótlega eftir að ég flutti hingað )
    Ég hef nú ekki notað mér það.
    Já, já þú ólst upp í mér kattarástina :)

    ReplyDelete