Wednesday, November 18, 2009

Sólin kíkir ekki á okkur aftur fyrr en 28. janúar, 2010


Frá 16.nóv. - 28. jan. skín sólin ekki á okkur hér á Siglufirði. Þá nær hún ekki að skína niður í fjörðinn en enn skín hún á fjallatoppana ein og t.d. í dag þegar ég tók þessa mynd kl. 12.30 í gær.
Eitthvað náði hún að skína neðar í fjallshlíðina eftir það en eftir 2 tíma var hún horfin á bak við Hafnarfjallið. Þegar hún birtist aftur, þann 28. janúar er hefð fyrir því að bakaðar séu pönnukökur í hverju húsi, svokallað " Sólarkaffi " sem þekkist víðar á landinu þar sem skólin sést ekki tímabundið.

2 comments:

  1. Skemmtileg þessi mynd. Mjög sérstakt; ég væri alveg til í sólarkaffi. // Heimir

    ReplyDelete
  2. já það verður heitt á könnunni og rjómapönnsur !
    kíktu við :)

    ReplyDelete