Friday, December 18, 2009

Sorphirðan.

Það er svo gaman að blogga en ég veit ekki hvort nokkur les það :) ég blogga samt !
Jæja nú eiga Siglfirðingar að flokka sorpið sitt ! enn betur en flestir aðrir held ég.
Nú fengum við 3 tunnur og í brúnu tunnuna fer allt matarkyns og það þarf að vera í sérstökum maíspokum sem eru dýrir. Í grænu tunnuna fer allur endurvinnanlegur pappír, fernur, plast og málmur, aðskilið í glærum pokum. Þriðja tunnan er svo fyrir rest sem ekki er endurvinnanleg,
Það held ég alla vega. Nú þarf að skola og þvo ruslið áður en því er hent, t.d. fer smjörva askja á tvo staði, taka verður pappírinn utan af öskjunni og fer hann í glærum plastpoka í grænu tunnuna en plastið ( þvegið )og sett í annan glæran plastpoka sem svo í grænutunnuna. Fjölskyldan þarf af og til að halda smá samráðsfund um í hvaða tunnu draslið fer :) eftir að það hefur verið þvegið og þurrkað. Ha ha ha ! lol lol
Þetta er allt gert í þágu umhverfisins, svo maður gerir þetta með glöðu geði, þetta er það sem koma skal í sorphirðu alls staðar á landinu býst ég við.

Núna blæs af norðan og tunnurnar lögðu af stað suður ! náði að hefta för þeirra á Selfoss
og stakk þeim undir tröppurnar, vona að þær verði þar á morgun þegar við vöknum.
Skúli ætlar að festa þær með þar til gerðum festingum.

2 comments:

  1. Það hlýtur að mega nota bréfpoka í stað maíspokana fyrir matinn. Ég hef notað hvoru tveggja.......mbk margrét

    ReplyDelete
  2. Já satt segirðu, það hlýtur að vera.
    Þegar við verðum orðin vön þessu, verður þetta ágætt. Tek strax eftir því að ég þarf miklu sjaldnar að fara út í tunnu með rusl, það var ég ekki búin að sjá fyrir :)

    ReplyDelete