Hér kemur fyrsta myndin í röðinni Hávegur 65 á Siglufirði.
Á myndinni sést inn í eldhús, baðherbergisspegillinn er við vaskinn sökum ónægra þæginda inn á baðherbergi ennþá. Á veggnum ofan við eldhúsborðið hangir mynd úr málmi keypt á Golden Lane við Pragkastala sem var yndislegl lítil og mjó gata frá því á öldum áður, húsin voru mjög lítil og þröng. Myndin er gerð eftir auglýsingaplagati eftir Tékkneska málarann Mucca.
Víkjum nú aftur að eldhúsinu á Hávegi 65 á Siglufirði. Ég kann ágætlega við þetta litla eldhús þótt skápapláss mætti vera meira og eldhúsborðið stærra. Eftir að Skúli lagði parketið yfir spónaplöturnar sem voru á gólfinu er þetta bara alveg ágætt :)

Það ætti að vera hægt að eldaeitthvað sæmilegt eða jafnvel bara gott þarna.
ReplyDeleteHlakka til að sjá stofuna.Kv.mamma.
Já, já það hefur tekist að töfra fram ágætis kræsingar í þessum ofni :) Stofumyndin kemur bráðum, það er reyndar erfitt að taka mynd en hún kemur.
ReplyDelete