Ég byrjaði fyrir skömmu að prjóna upp úr bókinni sem ég keypti á Akureyri um daginn.
( stelpur það var áður en ég fékk þessa frábæru blöð frá ykkur, næst verður prjónað úr þeim ! ) Hér í húsinu er mikill prjóna andi svo við Helga eru í miklu prjónastuði á kvöldin. Peysan er gefin upp fyrir lama ullargarn á prjóna nr. 3 en ég átti þetta garn og held að það komi ágætlega út. Ég er svo hrifin af grænu peysunni ( er framan á einu Drops blaðanna) langar til að prjóna hana næst. Þá þarf ég að panta garn hjá garn.is
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

Til hamingju með bloggið þitt. Jórunn á Flickr.
ReplyDeleteÞakka þér fyrir Jórunn, og þú ert líka með blogg sé ég.
ReplyDelete