Gúa Dögg kom með foreldrum sínum í heimsókn á Kornsá til afa og ömmu. Allt snérist um litlu dömuna, því hún var svo skemmtileg, og naut hún athyglinnar alveg í botn. Einnig var hún spennt fyrir kindunum á túninu sem voru hræddar við hana, hún sem var ekkert hrædd við þær. Við fengum svo stórt knús þegar hún fór.
No comments:
Post a Comment