Friday, December 18, 2009

Sorphirðan.

Það er svo gaman að blogga en ég veit ekki hvort nokkur les það :) ég blogga samt !
Jæja nú eiga Siglfirðingar að flokka sorpið sitt ! enn betur en flestir aðrir held ég.
Nú fengum við 3 tunnur og í brúnu tunnuna fer allt matarkyns og það þarf að vera í sérstökum maíspokum sem eru dýrir. Í grænu tunnuna fer allur endurvinnanlegur pappír, fernur, plast og málmur, aðskilið í glærum pokum. Þriðja tunnan er svo fyrir rest sem ekki er endurvinnanleg,
Það held ég alla vega. Nú þarf að skola og þvo ruslið áður en því er hent, t.d. fer smjörva askja á tvo staði, taka verður pappírinn utan af öskjunni og fer hann í glærum plastpoka í grænu tunnuna en plastið ( þvegið )og sett í annan glæran plastpoka sem svo í grænutunnuna. Fjölskyldan þarf af og til að halda smá samráðsfund um í hvaða tunnu draslið fer :) eftir að það hefur verið þvegið og þurrkað. Ha ha ha ! lol lol
Þetta er allt gert í þágu umhverfisins, svo maður gerir þetta með glöðu geði, þetta er það sem koma skal í sorphirðu alls staðar á landinu býst ég við.

Núna blæs af norðan og tunnurnar lögðu af stað suður ! náði að hefta för þeirra á Selfoss
og stakk þeim undir tröppurnar, vona að þær verði þar á morgun þegar við vöknum.
Skúli ætlar að festa þær með þar til gerðum festingum.

Snjóhúsið vann piparkökuhúsakeppnina.


Valið í matargerð í 10.bekk gerði piparkökuhús núna fyrir jólin og var þetta samkeppni.
Lagt var upp með 6 hópa sem hver fyrir sig gerði sit piparkökuhús.
Þau voru að ýmsum stærðum og gerðum og komust þátttakendur að raunum um að það er ekkert hlaupið að því að gera fallegt piparkökuhús :) Einn kennari skólans Sigurbjög Bjarnadóttir út Fljótunum var svo góð að aðstoða okkur við að líma húsin saman með bræddum sykri
Í gær fór fram atkvæðagreiðsla meðal alls starfsfólks skólans og í gærkvöldi á litlu-jólunum var svo verðlauna afhending. piparkökuhúsið sem vann var snjóhúsið á myninni hér að ofan. Hönnuðir og bakarar af því húsi eru:
Grænlensk stelpa sem er skiptinemi og heitir Kattaliit og Guðný Eygló.
Þetta var mjög skemmtilegt en vandasamt og eru nemendur og kennari reynslunni og brunasári ríkari :) Snjóhúsin verða til sýnis í glugga Sparisjóðs Siglufjarðar fram að áramótum.

Wednesday, December 16, 2009

Jólaleikurinn í skólanum.



Jólaleikur hefur verið í gangi í grunnskólanum á Siglufirði. Það hefur verið svo gaman og
" jólasveinarnir " mjög hugmyndaríkir. Mikið hefur verið um góðlátlega hrekki og átti ég einn slíka jólaleynivin :) Hann var t.d. alltaf að drasla út í kennslustofunni minni, einu sinni voru efna afgangar út um öll borð í stofunni, búið að binda saman alla nemendastóla og saumavélar. Daginn eftir var búið að dreifa palíettum um borðin. Þann þriðja voru nemendastólarnir komnir fram á gang og staðsettir í kringum jólatréð :) alla þessa daga voru skemmtilegar gjafir líka !
síðasta daginn var búið að skreyta bílinn minn með blöðrum og hvítum jólapakkaböndum og skrifa nýgift á afturrúðuna. Þetta var gert kl. 7 að morgni !! á kennarastofunni beið mín svo pakki með fíneríi úr gleri til hengja upp heima og eyrnalokkar sem voru jólaskraut :)
Þessu fylgdi svo bréf þar sem jólasveinninn rakti raunir sínar fyrir mér. Hann sagðist hafa verið að skreyta í stofunni minni og hengja upp skraut og ég bara hefði tekið þetta allt niður,
spurði mig hvort ég væri kanski ekkert fyrir skraut ?
Svo hafði hann reynt að skipuleggja kennsluna fyrir mig og poppa hana upp með því að flytja stólana fram á gang en sei sei nei ! þá lét ég bera stólana inn aftur, alveg ómöguleg !!
Það var alveg heilmikið fjör í þessum vinaleik og mikið gaman !

Thursday, December 10, 2009

Ganga milli handverksfólks og listamanna á Siglufirði.





Fór í skemmtilega göngu í kvöld ásamt u.þ.b. 100 öðrum Siglfirðingum.
Þetta er orðin árleg uppákoma fyrir jólin. Vinnustofur voru heimsóttar og kenndi þar margra grasa. Það voru gler og leirmunir, trévörur, þæfing, málverk og margt fleira. Hægt var að kaupa muni á flestum stöðum og á hverjum stað voru einhverjar veitingar, kaffi, gos kökur og nammi.
Virkilega skemmtilegt.

Tuesday, December 8, 2009

Jólastemnig á kennarastofunni.



Nú er orðið mjög jólalegt í bænum og einnig á kennarastofunni.
Á myndunum má sjá flesta kennara efra-húss þar sem unglingastigið er.
Sýnist vanta þrjá sem eru fastir kennarar á unglingastigi.
Mjög góður hópur sem kemst allur við þetta borð ef þétt er setið.
Sumir urðu aðeins vandræðalegir þegar ég tók mynirnar
en annars er mikið og hlegið.
Sérgreinarnar eru allar kenndar í húsi unglingastigs nema myndmenntin
er kennd í báðum húsum.
Skólinn verður skreyttur á fimmtudaginn og litlu-jól þann 18. des. og þá
eru allir komnir í jólafrí !!!!!!

Sunday, December 6, 2009

Hér er litla stofan :)



Hér er stofan, lítil og þröng eins og sjá má.
Stofuborðið er notað til þess að sauma við og þess háttar,
enda ekkert herbergi laust til þannig vinnu og eldhúsborðið
er enn minna. Okkur líður samt mjög vel hér :)

Inn úr kuldanum!



Hér eru Helga og Skúli að koma inn úr kuldanum, búin að ösla skaflana í ófærri götunni sem liggur "upp á efstu sillu " þ.e. Háveginn þar sem við búum og er alltaf síðastur
í ruðningsröðinni :(

Monday, November 30, 2009

Nú er vont veður í Búrabyggð !!


Jæja það snjóaði mikið í nótt og það var bylur í allan dag og enn snjóar !
Eina leyfilega leiðin út úr firðinum um Strákagöng er lokuð vegna sjnóflóðs sem féll utan við gangnamunnann. Sem betur fer urðu engin slys. Sauðkræklingar kalla Siglufjörð Búrabyggð, sbr. brúðumynd sem var í sjónvarpinu fyrir margt löngu er gerðist í svokallaðri Búrabyggð og í þá byggð var aðeins ein leið, sú sama, bæði inn og út. Nú erum við sem sagt lokuð inni í Búrabyggð.
Ég komst ekki heim á bílnum síðdegis, gatan upp til okkar á Háveginum var ekki fær, ekki einu sinni fyrir jeppa. Rétt fyrir kvöldmat var hún loksins rudd.

Í dag varð ég svo fyrir því að nemandi saumaði með saumavél í vísifingur vinstri handar minnar.
þetta var sem betur fer ekki alvarlegt, gerðist mjög skyndilega og ég vissi ekki fyrr en ég var búin að hrifsa að mér hendina og það fossblæddi úr fingrinum.
Stelpan varð ekkert skelkuð held ég :)
Eftir að vera búin plástra meiddið og beðið hana vinsamlegast um að taka fótinn af fótstiginu, hélt áfram að aðstoða hana.
Skrítið ég var oft að velta þessu fyrir mér hér áður fyrr að þau ættu einhvern tíma eftir að sauma í fingurna á mér þegar ég væri að aðstoða við að þræða nálina, bað þau þess vegna yfirleitt að taka fótinn af fótstiginu á meðan. En núna var ég hvorki að hugsa um þetta né að þræða nálina.

Sunday, November 22, 2009

Bryndís á Kornsá.


Dvöldum á Kornsá um helgina, það var yndislegt í Vatnsdalnum eins og alltaf :) Skúli vann í forstofunn við að pússa og skrapa undir málningu en til stendur að klára forstofuna um jólin.
Enginn snjór var í Vatnsdalnum, nema aðeins í fjöllunum. Guðmundur tengdafaðir minn dvaldi einnig á Kornsá þessa helgi og bauð ég upp á báberjakryddað ( ehemm... ég kryddaði það ekki ) lambalæri sem var mjög gott !
Myndin sem fylgir þessum pisli er af mér en þessa fallegu tehettu gaf Þórunn vinkona mín á Kornsá, mér í fimmtugsgjöf.
Þetta er sem sagt Bryndís á Kornsá :)

Wednesday, November 18, 2009

Sólin kíkir ekki á okkur aftur fyrr en 28. janúar, 2010


Frá 16.nóv. - 28. jan. skín sólin ekki á okkur hér á Siglufirði. Þá nær hún ekki að skína niður í fjörðinn en enn skín hún á fjallatoppana ein og t.d. í dag þegar ég tók þessa mynd kl. 12.30 í gær.
Eitthvað náði hún að skína neðar í fjallshlíðina eftir það en eftir 2 tíma var hún horfin á bak við Hafnarfjallið. Þegar hún birtist aftur, þann 28. janúar er hefð fyrir því að bakaðar séu pönnukökur í hverju húsi, svokallað " Sólarkaffi " sem þekkist víðar á landinu þar sem skólin sést ekki tímabundið.

Tuesday, November 17, 2009

Fiskinn minn, nammi - nammi - namm !

Það snjóaði nokkuð á Siglufirði á fyrrakvöld, í gær og í nótt. Til marks um magnið þá skipti ég yfir á kuldaskó sem eru eiginlega fjallgönguskór ! Þannig búin geng ég niður brekkuna hér fyrir neðan og niður á Suðurgötu en þar geymi ég Citroen bifreið mína þessa daga sem snjóað hefur. Bíllinn drífur nefnilega ekki upp brekkuna í þessari færð ! Snókoman hefur annan fylgifisk en hann er sá að Siglfirskir sjómenn hafa ekki róið til fiskjar í nokkra daga. Slíkt hefur að öllu jöfnu ekki raskað heimilislífi okkar en hér er hægt að kaupa þá bestu ýsu sem við höfum bragðað.
Nei, nei, það er ekki þannig að það sé allt fallegast og best á Siglufiði, heldur er ýsan sérstaklega bragðmikil úr sjónum hér. Ég veit ekki hvers vegna ! Helga vill nú aldrei þessu vant, helst soðna ýsu tvisvar í viku :) Vitið þið hvað fisksalinn veit nú orðið hvað ég ætla að kaupa. Ég prófaði um daginn að segja : " jæja, ég ætla nú bara að fá þetta venjulega " :)
Þá sagði hann: Já, þrjú ýsuflök, þau eru frekar smá núna ! þetta er svo lítill bær :))
Í kvöld eldaði ég ýsu í eldföstu móti með púrrulauk, papriku og ýmsum afgöngum af smurosti með beikoni/kryddjurtum/ sólþurrkuðum tömötum og vænni slettu af rjóma svo bar ég auðvitað fram kartöflur með þessu og rúgbrauð með smjöri. Þetta bragðaðist bara vel en soðna ýsan er betri !

Sunday, November 8, 2009

Fann tvífara minn í Hafnarfjalli á Siglufirði.


Kom auga á skessu andlit í fjallinu fyrir ofan skólann
Mér finnst hún líkjast mér :) hún er alla vega með sömu klippingu og ég.
Horfið á tvo kletta fyrir miðri mynd og hausinn er í klettinum til vinstri.
Komið þið auga á hana?

Monday, November 2, 2009

Kisur á Siglufirði.


Já, eins og þið vitið þá er ég agalega mikið hrifin af kisum.
Í sumar tók ég mynd af nágranna kisum sem búa í húsinu fyrir neðan mig :)
Ég hef lítið séð þær síðustu mánuði þar sem þær virðast vera innikisur á þessum árstíma.
Þær fara lítið út úr þessu búri nema ein og ein í einu.
Eru þær ekki sætar? Þær eru af einhverri stórri kattartegund sem ég man ekki hvað
heitir nema sú sem er ein vinstra megin á myndinni, hún er venjuleg íslensk kisa.
Hlakka til að fylgjast með þeim í vor :)

Sunday, October 25, 2009

Herbergi Helgu.


Þriðja mynd sýnir herbergi heimasætunnar,
Bara cósý og vel tiltekið hjá henni :) hjónaherbergið var ekki alveg jafn gott þess vegna var ekki tekin mynd þar né í stofunni en það kemur, bara kíkja við aftur.

Tölvukrókur.

Önnur mynd sýnir tölvukrókinn minn, eyði þar drjúgri stund á hverjum degi, m.a. við að lesa tölvupóst frá ykkur og skoða myndir á Flickr.com, sem er reyndar eins og þið vitið ágætis endurmenntun. Útsýni úr glugganum er beint upp í fjallið Hafnarfjall sem er ofan við kauptúnið.

Eldhúsið.


Hér kemur fyrsta myndin í röðinni Hávegur 65 á Siglufirði.
Á myndinni sést inn í eldhús, baðherbergisspegillinn er við vaskinn sökum ónægra þæginda inn á baðherbergi ennþá. Á veggnum ofan við eldhúsborðið hangir mynd úr málmi keypt á Golden Lane við Pragkastala sem var yndislegl lítil og mjó gata frá því á öldum áður, húsin voru mjög lítil og þröng. Myndin er gerð eftir auglýsingaplagati eftir Tékkneska málarann Mucca.
Víkjum nú aftur að eldhúsinu á Hávegi 65 á Siglufirði. Ég kann ágætlega við þetta litla eldhús þótt skápapláss mætti vera meira og eldhúsborðið stærra. Eftir að Skúli lagði parketið yfir spónaplöturnar sem voru á gólfinu er þetta bara alveg ágætt :)

Saturday, October 17, 2009

Viðmótið á síðunni minni.

Ég var að fikta í útlitinu á síðunni minni og er ekki ánægð með þær breytingar sem ég fæ að velja um. Næ ekki að breyta því í upphaflega útlitið sem var skást.
Kanski verð ég að eyða því og byrja aftur.
Það er spurning.
Verð að tala við einhvern bloggfróðan.

Heimir Freyr ..............

Margrét Long...................

Bryndís

Friday, October 16, 2009

Helga fann nöfnu sína :)


Báturinn flýtur vel.


Stóra stundin.

Í dag var stóra stundin runnin upp.
Báturinn var sjósettur, ég hef beðið eftir þeirri stund í margar vikur.

Á mínútunni kl. 15.00 þegar báðar eiginkonur ræðaranna voru mættar á staðinn
var bátnum ýtt úr vör.( fyrirgefið ef ég,landkrabbinn,tala ekki rétt á sjómannamáli) Farið var með sjóferðabænina og báturinn fékk nafnið Soffía.
Smíði bátsins var liður í endurheimt gamallar verkþekkingar hér á Siglufirði.
Að bæn lokinni fóru Skúli og Örlygur um borð og réru frá landi. Eftir góðan hring var talið óhætt að bjóða frúnum í siglingu, sem við Guðný þáðum með ánægju :)

Hér á eftir má sjá nokkrar myndir frá sjósetningunni.




Wednesday, October 14, 2009

Siglfirska.

Ég ætla að segja frá dæmi í málnotkun Siglfirðinga sem ég hef aldrei heyrt fyrr,
skyldi auðvitað hvað við var átt en þetta var alveg nýtt fyrir mér.
Í stað þess að segja t.d. " Þetta er hundurinn hennar Dísu "
segja þeir: "þetta er hundurinn Dísu.
Ég er ekki farin að tala svona enn en hver veit?

Þið kannist kanski við þetta?

Monday, October 12, 2009

Á Kornsá.



Gúa Dögg kom með foreldrum sínum í heimsókn á Kornsá til afa og ömmu.
Allt snérist um litlu dömuna, því hún var svo skemmtileg, og naut hún athyglinnar alveg í botn.
Einnig var hún spennt fyrir kindunum á túninu sem voru hræddar við hana, hún sem var ekkert hrædd við þær.
Við fengum svo stórt knús þegar hún fór.

Thursday, October 8, 2009

Nú sit ég við að prjóna mér peysu :)

Ég byrjaði fyrir skömmu að prjóna upp úr bókinni sem ég keypti á Akureyri um daginn.
( stelpur það var áður en ég fékk þessa frábæru blöð frá ykkur, næst verður prjónað úr þeim ! ) Hér í húsinu er mikill prjóna andi svo við Helga eru í miklu prjónastuði á kvöldin. Peysan er gefin upp fyrir lama ullargarn á prjóna nr. 3 en ég átti þetta garn og held að það komi ágætlega út. Ég er svo hrifin af grænu peysunni ( er framan á einu Drops blaðanna) langar til að prjóna hana næst. Þá þarf ég að panta garn hjá garn.is

Tuesday, October 6, 2009

Í dag skartar fjörðurinn sínu fegursta.

Í dag skartar fjörðurinn sínu fegursta, enda sól og blíða
og alveg passlega mikill snjór.
Ég lét setja nagladekkin undir sítrónuna mína í gær, eftir að hafa lent í
því að komast ekki upp brekkuna sem er nálægt skólanum.
Þurfti að bakka niður og var hálfhrædd við að bíllin snérist og ég myndi
á endanum hafna á húsi sem stendur neðan við brekkuna.
Ég slapp slysa og tjónlaus frá þessu, því bíllinn hélt þeirri stefnu sem honum
var ætlað, sem betur fer. Ég hringdi umsvifalaust á dekkjaverkstæðið
og pantaði tíma :)
Næsta verk er að kaupa nagla undir sjálfa mig,
því ég hef lent of oft í því að renna á rassinn í gönguferðum hér.
Það þarf meira að segja ekki snjó til :)
smá drulla skilar nefnilega sama árangri !

Ég tók myndavélina með mér í skólann í dag og tók nokkrar myndir þar.
Frá glugganum á ganginum þar sem textílstofan er, er svo fallegt útsýni.
Þaðan sést kirkjan og fjöllin í baksýn, mér dettur alltaf í hug Alparnir.
Ég tók líka eina mynd í textílstofunni til að sýna ykkur.
ég er ekki búin að læra að setja texta og myndir saman á bloggið,
þannig að ef þið finnið ekki myndirnar sem ég er að tala um
verðið þið að leita af þeim :)



Sunday, October 4, 2009

Í faðmi fjallanna.

Mér datt allt í einu í hug að blogga öðru hvoru fyrir vini mína og fjölskyldu, þar sem ég tók upp á því að flytjast búferlum langt norður í hafsauga.
Ég verð að biðja ykkur að afsaka stafsetnigarvillur sem eiga eftir að slæðast inn í bloggið mitt og einnig vil ég í upphafi afsaka lélegan ritstíl. Þetta er aðeins frásögn í máli og myndum af því sem ber fyrir augu og það sem ég tek mér fyrir hendur hér á Siglufirði.

Eins og ég hef sagt ykkur finnst mér ákaflega fallegt hér á Siglufirði.
Landslagið hér í firðinum er einstakt, fjöllin eru svo nálæg.
Þegar ég sit í stofunni og horfi á sjónvarpið er ég með fjall við hliðina á mér fyrir utan gluggann sem ég horfi jafnmikið á eða jafnvel meira :)
Fjallið er líka síbreytilegt eftir birtu og veðrabrigðum.

Ég er ekki enn búin að læra nöfnin á fjöllunum hér í kringum mig en það langar mig að gera.
( Einbeiti mér samt meira að því núna að læra nöfnin á börnunum sem ég er að kenna ).
Til að sjá nöfnin á fjöllunum er til góður örnefnavefur sem heitir Snókur. Snókur er einmitt fjall sem ég sé út um einn af gluggum hússins.
Ef þið viljið kíkja á vefinn er hér slóð á hann : http://snokur.is/

Eftirlætis fjallið mitt ( reyndar ekki það sem ég horfi á með sjónvarpinu ákvöldin )
heitir Hólsfjall og er staðsett við enda fjarðarins, hét áður Álfhyrna og skil ég ekkert í því að það nafn skuli ekki vera notað. Mér finnst það svo fallegt, niður við sjóinn er líka Álfhóll sem styður þetta nafn á fjallinu.
Í dag er bjart og fallegt veður allt mjallahvítt yfir að líta ég tók mynd af eftirlætisfjallinu mínu með því að stinga myndavélinni út um opnanlega fagið á glugganum.
Birti hana hér á síðunni ef mér tekst það :)

Hólsfjall.